Fimmtudagur 12.02.2009 - 20:54
- Ummæli
()
Súludansarinn Kate
Kate Hudson er mikill aðdáandi súludansa. Súludansinn stundar hún til að halda sér í formi en nýverið lét hún setja upp súlu inni á baðherbergi hjá sér.
Heimildarmaður US Weekly sagði Hudson óskaplega ánægða með nýju aðstöðuna:
„Hún er svo stolt af þessu. Hló eins og kátur krakki þegar súlan var sett upp og stökk svo á hana og sveiflaði sér með fætur hátt á lofti. Ótrúlega fær og einkar kynþokkafull.“
Kate Hudson hefur stundað súludansinn í meira en fimm ár en eróbikk stripp hefur líka sína vankanta. Hún þurfti tvisvar sinnum að koma á slysadeild árið 2006. Í annað sinn með tognaðan lærvöðva og síðar með brunasár á handlegg.
Þannig að stelpur… farið varlega.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is