Gunnar Svavarsson dregur sig í hlé. Fer ekki í framboð í vor
Gunnar Svavarsson, þingmaður Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi og núverandi formaður fjárlaganefndar Alþingis, tilkynnti á kjördæmaráðsfundi flokksins í kvöld að hann sæktist ekki eftir endurkjöri í komandi kosningum
Í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér segir:
Atburðir síðustu mánaða og vikna hafa kallað fram uppgjör í stjórnmálum og víðtæka umræðu um uppstokkun og aukið lýðræði. Við þessar aðstæður er eðlilegt að við sem nú sitjum á þingi, hvort heldur í lengri eða skemmri tíma, speglum okkur í umræðunni, frekar en okkur sjálfum og reynum eftir fremsta megni að hlusta á skilaboð þjóðarinnar. Kallað hefur verið eftir því að við stígum til hliðar og gerum mögulega nauðsynlega endurnýjun í stjórnmálunum. Þrátt fyrir að hafa aðeins setið 2 ár á Alþingi, hef ég hlustað ítarlega á þessa umræðu og tekið hana á ríkan hátt til mín. Í ljósi þessa, m.a. til þess að skapa svigrúm fyrir nauðsynlega endurnýjun í efstu sætum framboðslistans hef ég ákveðið að sækjast ekki eftir endurkjöri í komandi Alþingiskosningum. Ég tek þessa ákvörðun í sátt við alla þá sem ég hef starfað með í öllum stjórnmálaflokkum, um leið og ég þakka þann mikla stuðning og hvatningu sem ég hef jafnan fundið fyrir.
.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is