Fimmtudagur 19.02.2009 - 08:44
- Ummæli
()
Björn Bjarnason: Utanríkisráðu- neyti stýri heimsóknum erlendra fjölmiðla á Bessastaði
Björn Bjarnason telur það hutverk utanríkisráðuneytis að stýra heimsóknum erlendra fjölmiðlamanna á Bessastaði.
Þetta kemur fram í tölvupósti Björns til Fréttablaðsins.
Björn telur einnig æskilegt að utanríkisráðuneytið eigi fulltrúa á staðnum í slíkum heimsóknum.
Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar, sagði að ekki yrði aðhæfst frekar vegna ummæla Ólafs Ragnars Grímssonar eins og þau birtust í þýskum fjölmiðlum nýverið.
Utanríkisráðuneytið og forsætisráðuneytið hafi sent áréttingar til þýskra fjölmiðla, og samkvæmt upplýsingum frá utanríkismálanefnd hafi ekki orðið sérstök eftirmál í Þýskalandi vegna fréttanna.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is