Lúðvík Bergvinsson hættir þingmennsku
Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, hefur ákveðið að hætta þingmennsku eftir 14 ára setu á Alþingi.
Lúðvík sendi síðdegis frá sér yfirlýsingu um að hann ætlaði ekki að leita eftir endurkjöri:
„Ég ákvað fyrir nokkru að leita ekki eftir endurkjöri í komandi alþingiskosningum, en á Alþingi hef ég átt sæti frá árinu 1995. Fjórtán ár er langur tími á sama vinnustað.
Þau miklu straumhvörf sem orðið hafa í íslensku samfélagi undanfarna mánuði, gera þá sjálfsögðu og eðlilegu kröfu að breytingar verði á skipan Alþingis, enda er þáttur stjórnvalda mikill þegar kemur að ábyrgð á því að fjármálakerfi landsins hrundi.
Ég þakka öllum fyrir þann stuðning og traust sem ég hef notið þann tíma sem ég hef átt sæti á Alþingi. Það eru mikil forréttindi og lærdómur hverjum þeim sem fær að starfa á Alþingi í umboði almennings. Fyrir það vil ég sérstaklega þakka.
Virðingarfyllst
Lúðvík Bergvinsson
Formaður þingflokks Samfylkingarinnar“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is