Nýi Glitnir fellir niður uppgreiðslu- gjald verðtryggðra lána – tekur gildi frá og með deginum í dag
Nýi Glitnir hefur ákveðið að fella tímabundið niður uppgreiðslugjald verðtryggðra húsnæðislána.
Uppgreiðslugjald samkvæmt skilmálum þessara lána er 2%, en frá og með deginum í dag er engin þóknun tekin fyrir uppgreiðslu né vegna innáborgunar á höfuðstól.
Birma Einarsdóttir, bankastjóri Nýja Glitnis, segir þetta vera eina af þeim leiðum sem verið sé að kynna til að styðja við bak viðskiptavinanna. Bankinn hafi fundið fyrir áhuga viðstkipavina til að greiða upp lán og með þessari aðgerð vilji Glitnir koma til móts við þá.
Glitnir gengur lengra en Kaupþing sem veitir nú helmingsafslátt af uppgreiðslugjaldi. Afslátturinn þar gildir aðeins fyrir þá sem uppfylla skilyrði um viðskipti og þá þarf að greiða eina milljón eða meira inn á lánið til að njóta afsláttarins.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is