Orkumálastjóri: ESB aðild breytir litlu um yfirráðarétt og nýtingu orkuauðlinda
Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri segir ekki hægt að halda fram að hugsanleg aðild Íslands að ESB myndi hafa veruleg áhrif á stöðu okkar og möguleika varðandi yfirráðarétt og nýtingu jarðrænna auðlinda.
Hann segir fyrirkomulag eignarhalds náttúruauðlinda ekki vera viðfangsefni ESB, heldur alfarið á hendi aðildarríkjanna.
Guðni sagði í erindi á aðalfundi Samorku um íslenskar orkulindir og ESB að hugsanlegar viðræður þyrftu þó að byggja á nákvæmri greiningu á þeirri aðlögun að reglum ESB sem þegar hefur verið samið um og þeim reglum sem eftir er að semja um, að því er kemur fram í frétt á vef Samorku.
„Allar helstu lagagerðir ESB á sviði orkumála hafa þegar verið teknar upp í EES-samninginn og innleiddar á Íslandi, sumar þeirra með sérstökum aðlögunum vegna sérstöðu Íslands. Við inngöngu í ESB þyrfti að tryggja í aðildarsamningi að þær aðlaganir giltu áfram, þar sem þær ættu enn við,“ sagði Guðni.
Hann sagði bæði kosti og galla, ógnanir og tækifæri fólgin í hugsanlegri aðild að ESB, fyrir íslenska orkugeirann. Þannig myndi aðild t.d. hafa í för með sér aukna skriffinsku og dýrari stjórnsýslu og samskipti. Eins gætu t.d. ýmsar tilskipanir haft hér áhrif í framtíðinni, t.d. um skattlagningu á orku og um söfnun olíubirgða. Á hinn bóginn væru jafnframt kostir og tækifæri fólgin í aðild að ESB. Þannig gæti aðild t.d. skapað íslenskum orkufyrirtækjum greiðari aðgang að ýmsum verkefnum sem tengdust umhverfisstefnu ESB og áherslunni á endurnýjanlegar orkulindir sem við erum svo rík af. Aðildinni fylgdu einnig m.a. aukin tækifæri til áhrifa á stefnumótun sambandsins og þá væru tækifæri t.d. fólgin í aukinni nýtingu jarðhita í sumum aðildarríkjum ESB og í bættum aðgangi að rannsóknarsamstarfi og loftslagstengdum verkefnum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is