Formenn stjórnarflokka viðra seinkun kosninga – Framsókn og sjálfstæðismenn á móti
Sem kunugt er hafa kosningar verið boðaðar laugardaginn 25. apríl, en nú telja formenn stjórnarflokkanna sig þurfa meiri tíma til að ná sínum málum í gegn fyrir kosningar.
Þetta kom fram í máli Geirs H. Haarde á fundi í Valhöll í gær og jafnframt að hann væri því algerlega andsnúinn að breyta dagsetningunni, segir í Fréttablaðinu.
Formenn stjórnarflokkanna munu hafa viðrað möguleika á því að kjósa seinna í vor, en Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, segir hugmyndirnar hafa komið til vegna vegna tæknilegra erfiðleika.
Frestur til að skila inn framboðuðm renni út á föstudaginn langa verði kosið 25. apríl. Þau mál yrðu hinsvegar leyst öðruvísi ef kosningum yrði frestað.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir sinn flokk vilja halda sig við þegar ákveðna dagsetningu, 25. apríl. Sterk krafa hafi verið um kosningar sem fyrst þegar skipt var um ríkisstjórn. Það beri að standa við það.
Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, segist hinsvegar hlynntur seinkun kosninganna, stjórnvöld þurfi tíma til að ljúka því sem þurfi að ljúka áður en kosið verði til þings.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is