Fasteignasala hefur fengið fasteignir í eigu banka í sölu á „góðu verði“ – „engin brunaútsala“
Fasteignasalan RE/MAX Bær hefur fengið í sölu um þrjátíu fasteignir frá banka en ekki fæst uppgefið um hvaða banka ræðir. Morgunblaðið greinir frá þessu.
Ingi Már Grétarsson, sölufulltrúi hjá fasteignasölunni, segir að margar eignanna hafi verið til sölu annars staðar svo mánuðum skiptir og auglýstar á fasteignavefjum.
Bankinn sem um ræðir vilji reyna nýja sölu og komið til sín, en starfsmenn fasteignasölunnar fengu töluvpóst frá Inga Má þar sem segir að eignirnar fáist á góðu verði.
Hann vill ekki gefa upp hvaða eignir séu í boði, en í tölvubréfinu kemur fram að þarna séu ýmsar gerðir af íbúðarhúsnæði, sumarhús og iðnaðarhúsnæði, frá fokheldu upp í tilbúið, á Reykjavíkursvæðinu og landsbyggðinni.
Imgi Már vísar því algjörlega á bug að um svokallaða brunaútsölu sé að ræða þrátt fyrir gott verð á eignunum. Hann reikni með að flestar eignanna seljist á markaðsverði eins og það er um þessar mundir.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is