Sigmundur Davíð: Samfylkingin í skipulagðri rógsherferð gegn mér og eiginkonu minni
Í helgarviðtali í Fréttablaðinu í dag sakar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, Samfylkinguna um skipulagða rógsherferð gegn sér.
Hann segir fjármálastöðu sína og eiginkonu sinnar rótina að herferðinni. Gert hafi verið tortryggilegt í netumræðum að eiginkona hans hafi selt hlut sinn í P. Samúelsson, en umræðan fari fram af vel skipulögðum hópi Samfylkingarmanna.
Orðrétt segir Sigmundur um eiginkonu sína í viðtalinu:
„Það er ekkert launungarmál að fjölskylda hennar rak P. Samúelsson. Hún seldi sinn
hlut í því og var mjög hörð á því á sínum tíma að gefa alla upphæðina upp til skatts og fara ekki í neinar æfingar með það. Hún er ofurvarfærin, allt um það mál liggur fyrir og í rauninni ekkert meira um það að segja.
Hins vegar hef ég orðið var við það að þetta hefur verið notað til að reyna að gera mig tortryggilegan og þá komum við aftur að netumræðunni sem virðist afar vel skipulögð af vissum hópi.“
Hvaða hópi?
Sigmundur Davíð hefur sagt koma til greina að birta lista yfir eigur sínar og eignatengsl. Þingmenn flokksins birtu slíkan lista á heimasíðu flokksins vorið 2005, en Eyjan fjallaði um þessi mál hér í byrjun febrúar.
Hugsanlega eru þessi ummæli Sigmundar Davíðs til marks um að hrikti í stoðum samstarfsflokkanna, sem Framsókn ver falli, segir á vísi.is.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is