Mánudagur 23.02.2009 - 08:11 - Ummæli ()

Almennir bankastarfsmenn leita sálfræðihjálpar – taka inn á sig þjáningar viðskiptavinanna

036coupleworkingonfinances.jpgÍ kjölfar bankahrunsins hefur fjöldi bankastarfsmanna leitað sér sálfræðiaðstoðar, en að sögn Þórkötlu Aðalsteinsdóttur sálfræðings er um að ræða ákveðna áfallahjálp fyrir starfsfólk bankanna.

Þórkatla, sem hefur sinnt fjölmörgum bankastarfsmönnum, segir í viðtalið við Fréttablaðið að starfsfólkið taki inn á sig umræðu um bankana í þjóðfélaginu. Það taki nærri sér að horfa upp viðskiptavini í miklum erfiðleikum og vera ekki í aðstöðu til að hjálpa. Þessi óvissa gangi nærri bankastarfsmönnum, sem vinna við að liðsinna fólki í peningamálum.

Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, segir þetta rétt, starfsfólk bankanna taki hrunið mjög inn á sig.

Hann gagnrýnir að fólk í opinberri umræðu noti orðið „bankamenn“ yfir alla starfsmenn bankanna, án tillits til þess hvort um sé að ræða yfirmenn eða starfsfólk á gólfi.

Síðarnefndi hópurinn hafi ekkert gert af sér nema vinna í banka og ósanngjarnt að setja alla undir sama hatt.

Þórkatla telur þó sögur um leiðindi viðskiptavina bankanna séu ýktar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is