Mánudagur 23.02.2009 - 06:38 - Ummæli ()

„Viltu vinna milljarð“ með átta Óskara – Kate Winslet og Sean Penn best í aðalhlutverkum

viltu-vinna.jpegBreska kvikmyndin Slumdog Millonaire, eða Viltu vinna milljarð, fékk átta Óskarsverðlaun í nótt.

Slumdog Millonaire var valin besta myndin,  leikstjórinn Danny Boyle var valinn besti leikstjórinn, tónskáldið A.R. Rahman fékk tvenn verðlaun fyrir tónlist í myndinnni og þá fékk myndin verðlaun fyrir kvikmyndatöku, klippingu, hljóðsetningu og handrit.

Kate Winslet fékk verðlaun fyrir besta leik í aðalhlutverki fyrir kvikmyndina Reader og eins spáð hafði verið og Sean Penn hlaut verðlaunin sem besti leikarinn fyrir hlutverk sitt í Milk.

Indverska tónskáldið A.R. Rahman fékk tvenn verðlaun fyrir tónlist í myndinni og myndin fékk einnig verðlaun fyrir handrit, kvikmyndatöku, hljóðsetningu og klippingu.

Breska leikkonan Kate Winslet fékk verðlaun fyrir besta leik í aðalhlutverki fyrir myndina The Reader og bandaríski leikarinn Sean Penn var valinn besti leikarinn í aðalhlutverki fyrir myndina Milk.

Ástralski leikarinn Heath Ledger fékk Óskar fyrir besta leik í aukahlutverki í myndinni  The Dark Knight, en Ledger lést fyrir rúmu ári.

Hin spænska Penélope Cruz hlaut Óskar fyrir fyrir besta leik í aukahlutverki fyrir myndina Vicky Cristina Barcelona og besta erlenda myndin var valin Departures.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is