Davíð Oddsson í Kastljósi í kvöld
Davíð Oddsson seðlabankastjóri situr fyrir svörum í Kastljósi á RÚV í kvöld.
Hann verður meðal annars spurður út í fullyrðingar sínar um að hann viti af hverju Bretar settu hryðjuverkalög á Landsbankann, að sögn RÚV.
Davíð er enn sem fyrr í eldlínu íslenskra stjórnmála.
Hefði ríkisstjórninni orðið að þeirri ósk sinni að fá frumvarp sitt til nýrra laga um Seðlabankann samþykkt í dag, hefði dagurinn í dag hugsanlega orðið síðasti vinnudagur Davíð í bankanum.
Útséð er hins vegar um að svo verði, þar sem ekki er útlit fyrir að umfjöllun um frumvarpið klárist í viðskiptanefnd fyrr en í fyrsta lagi á morgun.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði á blaðamannafundi í morgun að æskilegt væri að búið verði að skipta um bankastjórn í Seðlabankanum þegar sendinefnd AGS komi til landsins á fimmtudag. Sendinefndin þurfi að ræða mikilvæg mál við bankastjórnina og því sé æskilegt og eðlilegt að ný bankastjórn ræði við sendinefndina en ekki stjórn sem sé að fara frá.
Davíð hefur gefið í skyn að hann kynni að fara aftur í stjórnmál.
Í viðtali við Fyens Stiftstidende í byrjun desember sl. sagðist hann ætla að gegna stöðu bankastjóra nokkur ár í viðbót og þegar kæmi að því að hann hætti myndi hann gera það af sjálfsdáðum. Yrði hann hins vegar þvingaður til að víkja myndi hann snúa sér að stjórnmálum á ný.
Síðast kom Davíð fram í Kastljósi þriðjudagskvöldið 7. okóber í frægu viðtali í upphafi bankahrunsins, þar sem hann lýsti því m.a. yfir að Íslendingar myndu ekki borga erlendar skuldir bankanna.
Sigmar Guðmundsson ræddi við Davíð í október tekur líka sprengidags-viðtalið við hann í kvöld.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is