Fréttaskýring: Valdi forseta Alþingis til að taka mál úr þingnefnd takmörk sett
Afar ólíklegt verður að teljast að Seðlabankafrumvarpið verði tekið til þriðju og síðustu umræðu á Alþingi í dag þótt forseti þingsins hafi sett það sem fjórða mál á dagskrá þingfundarins sem hefst kl. 13.30. Ástæðan er sú að viðskiptanefnd hefur ekki lokið umfjöllun sinni um málið. Það var ekki tekið fyrir á fundi hennar í morgun. Jafnvel þótt málið yrði afgreitt úr nefndinni í dag á aukafundi yrði að fá samþykkt afbrigði til að taka það á dagskrá þingfundarins, þar sem sólarhringur verður að líða frá því mál er afgreitt úr nefnd með nefndaráliti og þar til það kemst á dagskrá Alþingis. Afbrigði ná aðeins fram að ganga með stuðningi stjórnarandstöðunnar.
Þessi tímafrestur gildir þó ekki ef ekkert nefndarálit kemur fram. Líkur á aukafundi í viðskiptanefnd í dag eru taldar hverfandi.
Traustar heimildir Eyjunnar herma að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hafi í gær reifað þá hugmynd innan stjórnarliðsins að forseti Alþingis, Samfylkingarmaðurinn Guðbjartur Hannesson, beitti valdi sínu, tæki málið úr nefndinni og léti hefja þriðja umræðu um það. Fallið var frá þessum hugmyndum.
Ekki eru sérstök ákvæði í þingsköpum sem heimila forseta þingsins að taka mál úr nefnd og setja á dagskrá þingfundar. Litið er hins vegar svo á að forsetinn hafi slíkan rétt í krafti þess valds í þingsköpum að ráða dagskrá Alþingis. Hann geti þó aðeins beitt því ef hann getur fært fyrir því rök að meirihluti í þingnefnd stöðvi á ómálefnalegan hátt afgreiðslu máls sem meirihluti þingmanna vill taka á dagskrá. Ekki er talið að hægt sé að færa slík rök fram gegn ákvörðun viðskiptanefndar að bíða eftir afstöðu Evrópusambandsins til löggjafar um seðlabanka og fjármálastofnanir.
Í ljósi þessa verður að teljast líklegast að Seðlabankafrumvarpið verði ekki tekið fyrir á þingfundi í dag. Þess verði beðið að það verði afgreitt úr viðskiptanefnd, sem verður í fyrsta lagi á morgun, miðvikudag. Það mun þá komast á dagskrá Alþingis á fimmtudaginn.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is