Þriðjudagur 24.02.2009 - 10:08 - Ummæli ()

Jolie og Damon týndu styttunni

1oscars-gal-angelina-jolie.jpgÓskarsverðlaunahátíðin er án efa hápunktur ársins í Hollywood og þeir sem eru tilnefndir eins og nálum. Tilfinningarnar sem brjótat út þegar verðlaunahafinn þakkar fyrir sig eru oftar en ekki ólýsanlegar.
En stytturnar sjálfar fá ekki endilega heiðurssess á heimili viðtakenda.

Angelina Jolie sagði nýlega frá því að hún væri búin að týna Óskarsverðlaunastyttunni sem hún fékk fyrir leik sinn í kvikmyndinni Girl, Interrupted.

Hún bað móður sína Marcheline Betrand fyrir styttuna, sem setti hana á vísan stað um leið og hún sagðist myndu geyma hana eins og sjáaldur auga síns þar sem styttan væri mikilvæg fyrir mannkynssöguna.
Nú er Betrand látin og enginn hefur hugmynd um hvar styttan er niðurkomin.
„Það er ekki beint hægt að segja að ég hafi týnt styttunni, en ég veit ekkert hvar hún er í augnablikinu,“ sagði Jolie.damon7.jpg

Matt Damon, sem hlaut Óskarsverðlaun fyrir Good Will Hunting, er líka búinn að týna sinni styttu.

„Ég veit að hún endaði í íbúðinni minni í New York, en það vildi svo óheppilega til að það flæddi í íbúðinni meðan við vorum að heiman. Síðan hef ég ekki séð styttuna, en vona auðvitað að ég finni hana einhverntíma,“ sagði Damon.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is