Þriðjudagur 24.02.2009 - 10:06
- Ummæli
()
Óvissa um störf Alþingis og Seðlabankafrumvarpið. Viðskipta- nefnd ræddi málið ekki í morgun
Óvissa ríkir um þingstörf á Alþingi í dag. Boðað hefur verið til þingfundar kl. 13.30 og er Seðlabankafrumvarpið fjórða mál á dagskrá. Fyrsta mál á dagskrá er hins vegar óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra. Seðlabankafrumvarpið er fast í viðskiptanefnd þingsins sem fundaði í morgun án þess að taka það fyrir. Hugsanlegt er því að málið verði tekið af dagskrá þingfundarins.
Framvindan gæti skýrst eftir ríkisstjórnarfund sem haldinn er fyrir hádegi. Reglulegur blaðamannafundur Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra verður í Þjóðmenningarhúsinu kl. 11.30 og er næsta víst að Seðlabankamálið komi þar til umræðu.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is