Þriðjudagur 24.02.2009 - 15:01 - Ummæli ()

Tillögur Framsóknar um 20% niðurfellingu húnæðisskulda kosta 280-300 milljarða

asi-logoid1.jpgHenny Hinz hagfræðingur ASÍ efast um að tillögur Framsóknarflokksins um 20% niðurfellingu á skuldum heimila og fyrirtækja séu raunhæfar. Hún segir þær mjög kostnaðarsamar í framkvæmd, kostnaðurinn vegna húsnæðisskulda heimila verði á bilinu 280 til 300 milljarða króna.

Henný sagði í viðtali á RÚV í morgun að ASÍ sæi ekki í fljótu bragði hvar ætti að taka fjármagn í aðgerðir sem þessar og vildi frekar að menn einbeittu sér að verst setta hópnum og skoðuðu sértæk úrræði svo sem niðurfellingu skulda fyrir hann.

Hún sagði ekki víst að 20% niðurfelling gagnaðist þeim allra verst stöddu sem stefndu í gjaldþrot, t.d. vegna erlendra lána.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is