Föstudagur 27.02.2009 - 09:44 - Ummæli ()

Hoffman: Gráti nær í Frakklandi

85130039.jpgDustin Hoffman gerði hvað hann gat til að halda aftur af tárunum þegar hann var útnefnur „Einn af bestu leikurum okkar tíma“ í Frakklandi.

Það var menningarmálaráðherra Frakka, Christine Albanel, sem heiðraði hinn 71 árs gamla leikara við National Order Of Arts And Letters-athöfnina í Frans.

„Þú býrð yfir svo stórbrotnum krafti að oft er erfitt að greina þig frá persónunum sem þú leikur,“ sagði Albanel við athöfnina.

Hún minntist sérstaklega á leik Hoffmans í Kramer Vs. Kramer og Rain Man og sagði hann „stórmenni kvikmyndanna“ um leið og hún hengdi græna medalíu um hálsinn á honum.

Hoffmann þurfti smá tíma til að jafna sig, en svo tókst honum að slá á létta strengi.

„Á mínum aldri grætur maður jafnvel yfir veðurfréttunum,“ sagði hann.

Þá sagði hann verðlaunin draumi líkust og bætti því við að hann hefði alltaf verið aðdáandi franskra kvikmynda.

Eiginkona Hoffmans, Lisa Gottsegen, var með honum við athöfnina.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is