Mörður sneiðir að Skúla í keppni um 4. sætið: Framkvæmdastjóri verði kjörinn á landsfundi
Keppni frambjóðenda í toppsætum flokkanna fer nú víða harðnandi.
Mörður Árnason leggur þannig til atlögu við Skúla Helgason keppinaut sinn um 4. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík með nýrri tillögu sem hann leggur fyrir landsfund flokksins sem hefst 27. mars.
Samkvæmt tillögunni vill Mörður að landsfundur kjósi í stöðu framkvæmdastjóra flokksins, sem Skúli gegndi til skamms tíma. Sigrún Jónsdóttir var ráðin tímabundið í stöðuna í stað Skúla, en ákveðið hafði verið að auglýsa ekki eftir nýjum framkvæmdastjóra Samfylkingarinnar til framtíðar, fyrr en eftir kosningar í vor.
Mörður var um tíma ritstjóri Samfylkingarvefsins, en Skúli tók við því hlutverki þegar skipulagsbreytingar voru gerðar á skrifstofu flokksins í fyrra.
Mörður telur að framkvæmdastjórinn „geti betur orðið mótvægi við þá sem veljast til annarra forystustarfa í flokknum í stað þess að vera einskonar flokkslegur aðstoðarmaður formannsins einsog verið hafi,“ eins og hann orðar það.
Í greinargerð með tillögunni segir að með þessari skipan mála séu meiri líkur á öflugu flokksstarfi og víðtækum umræðum sem skort hafi á síðan Samfylkingin hóf þátttöku í ríkisstjórn vorið 2007.
Auk tillögunnar um að kjósa framkvæmdastjóra er gert ráð fyrir nokkrum öðrum breytingum á skipan flokksforystu, meðal annars að hætt verði að kjósa sérstakan ritara og gjaldkera fyrir flokkinn á landsfundi heldur verði þeir valdir í framkvæmdastjórn flokksins, og einnig formaður þeirrar stjórnar sem nú þarf að kjósa á landsfundi.
Mörður segir það óþekkt í sögu íslenskra stjórnmálahreyfinga að framkvæmdastjóri sé kjörinn á flokksþingi. Svo sé þó ekki alstaðar og bendir í greinargerðinni á flokk sænskra jafnaðarmanna þar sem framkvæmdastjóri er kjörinn úr hópi framkvæmdarstjórnarmanna.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is