Laugardagur 07.03.2009 - 12:01 - Ummæli ()

Ingibjörg Sólrún ræðir veikindin við Sölva – hefur skert jafnvægis- skyn og getur ekki ekið bíl

isgalthingi2.jpgDV segir frá því í dag að í þætti Sölva Tryggvasonar á Skjá einum í kvöld lýsi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir veikindum sínum með ítarlegri hætti en hún hefur gert áður.

Ingibjörg lýsi því hvernig veikindin hafi haft áhrif á daglegt líf hennar og segi meðal annars frá því að jafnvægisskyn hennar sé slæmt og hún fái sjóveikistilfinningu reglulega.
Hún geti þess vegna ekki ekið bíl.

Ingibjörg hefur sem kunnugt er glímt við veikindi allt frá því hún fékk aðsvif í pallborðsumræðum á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York 22. september síðastliðinn.

Í þættinum upplýsir Ingibjörg Sólrún einnig að Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hafi gefið henni fyrirheit um að gerðar yrðu breytingar á stjórn Seðlabankans í janúar. Það hafi ekki gengið eftir og það sé ein ástæða þess að slitnaði upp úr stjórnarsamstarfinu.

Um þetta má lesa í frétt eyjunnar fyrr í morgun.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is