Um 30 þúsund heimili með eða á leið í neikvæða eiginfjárstöðu. Ríkisstjórnin kynnti ný úrræði
Um 30 þúsund heimili í landinu eru með neikvæða eiginfjárstöðu eða á leið í þá stöðu. Þetta kom fram á vikulegum blaðamannafundi Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar eftir ríkisstjórnarfund í morgun.
Eiginfjárstaðan hjá 14% heimila í landinu er neikvæð og eiginfjárstaða 20,6% heimila á bilinu 0 til 5 milljónir, samkvæmt bráðabirgðatölur úr kortlagningu starfshóps Seðlabanka Íslands á fjárhagsstöðu 80 þúsund einstaklinga.
Jóhanna tók fram að inn í þessar tölur vantaði stóran hluta þar sem væru upplýsingar um bílalán og yfirdráttarlán og því væri ljóst að staðan væri enn verri en þessar tölur starfshópsins gefa til kynna.
Hún sagði þetta nægjanlegar upplýsingar til að byggja framhaldsaðgerðir ríkisstjórnarinnar til aðstoðar skuldsettum heimilum sem hafa verið í bígerð. Þetta eru fimm til sex ný úrræði sem gengið verður frá í vikunni. Jóhanna sagðist gera ráð fyrir að frumvörpin kæmu til meðferðar hjá þingflokkum í vikulok.
Aðgerðirnar sem Jóhanna kynnti að væru væntanlegar og koma til viðbótar þeirri aðstoð sem þegar hefur verið tilkynnt, eru í stórum dráttum þessar:
- Aðgerðir fyrir fólk sem eru í miklum erfiðleikum vegna myntkörfulána. Mögulegt verður að breyta gengistryggðum fasteignalánum yfir í hefðbundin verðtryggð lán í íslenskum krónum.
- 25% hækkun hámarksupphæð vaxtabóta og viðmiðunarupphæð bótanna.
- Greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna. Nú liggur fyrir þinginu frumvarp um nær til samningskrafna en nýtt frumvarp er víðtækara og ná yfirgreiðsluaðlögun sem fasteignaveðlána. Jóhanna sagði að þarna væri miðað við að fólk borgaði eins og það gæti af lánum í 5 ár en það sem eftir stæði færi í afskriftir.
- Jóhanna sagði jafnframt verið að vinna að samkomulagi við samtök fjármálafyrirtækja og lífeyrissjóða um að öll greiðsluerfiðleikaúrræði Íbúðalánasjóðs nái skilyrðislaust til þeirra sem eru með lán annars staðar en hjá ríkisbönkunum.
- Nýr lánaflokkur hjá Íbúðalánasjóði: Endurfjármögnunarlán sem sjóðnum verður heimilt að veita til að greiða upp íbúðalán hjá bönkum og sparisjóðum.
Á fréttafundinum nefndi Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra jafnframt fyrirhugaðar stjórnvaldsákvarðanir og breytingar á þeim ráðstöfunum sem þegar hafa verið ákveðnar eða eru í meðferð þingsins vegna erfiðleika fyrirtækja.
Þetta snertir greiðsluaðlögunina fyrir einstaklinga og fyrirtæki, lög um nauðasamninga og gjaldþrot og einnig vaxtamál skuldara. Steingrímur sagði t.d. í bígerð að útbúa „gjalddaga-aðlögun“ fyrir atvinnulífið hvað varðaði skil á tollum, vörugjöldum og virðisaukaskatti. Þar er ger ráð fyrir að vextir reiknist ekki þegar gjalddagar verði færðir aftur.
Steingrímur sagði líka vera til skoðunar í ráðuneytinu breytta greiðsluröð í vanskilum skattakrafna. Í stað þess að fyrst séu greiddir áfallnir dráttarvextir og ekki sé hægt að byrja að greiða niður höfuðstól, verði nú hægt að byrja að greiða niður höfuðstol elstu krafnanna.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is