Kristinn Örn Jóhannesson sigraði í formannskjöri VR. Gunnar Páll neðstur
Kristinn Örn Jóhannesson hefur verið kosinn nýr formaður í VR, fjölmennasta verkalýðsfélagi landsins.
Kristinn sigraði í formannskjörinu með nokkrum yfirburðum, eða 41,9% atkvæða.
Lúðvík Lúðvíksson fékk 30,1% og Gunnar Páll Pálsson núverandi formaður VR fékk 28%. Nýr formaður tekur við á aðalfundi 2. apríl.
6.743 af rúmlega 25 þúsund félagsmönnum, eða um 26%, tóku þátt í kosningunni sem var rafræn.
Kristinn Örn Jóhannesson er 42 ára og hefur verið félagi í VR með hléum frá 16 ára aldri.
Hann er vaktstjóri í flugrekstrareftirliti Primera Air. Hann nam flugrekstrarfræði í Bandaríkjunum og hefur starfað bæði hérlendis og erlendis síðastliðin 22 ár. Kristinn er í sambúð og á þrjár dætur, þriggja og fimm ára.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is