Miðvikudagur 11.03.2009 - 17:57 - Ummæli ()

Pirringur norðan heiða yfir notkun Bjarna og félaga á nafni L-listans

bjarni-hardar-l-listinn.jpgVíðir Benediktsson, varabæjarfulltrúi L-listans á Akureyri, gerir athugasemdir við notkun nýrra  stjórnmálasamtaka Bjarna Harðarsonar, Þórhalls Heimissonar og fleiri á nafninu L-listinn.

Víðir segir á bloggsíðu sinni að L-listinn hafi verið stofnaður á Akureyri 1998 undir forystu Odds Helga Halldórssonar bæjarfulltrúa og hafi kennitöluna 580402-2080.

„Ekki veit ég undir hvaða kennitölu Bjarni og presturinn ætla að bjóða fram en það er ekki úr vegi að minna þá félaga á að L-listinn á Akureyri er í fullu fjöri og á ekkert skylt við flokk prestsins og draugahúsforstjórans. Hinn nýi prest og draugalisti er ekki að spá í svoleiðis smámuni, heldur tekur nafn L-listans á Akureyri grímulaust og þrátt fyrir að bæði Bjarni og Þórhallur hafi ítrekað verið spurðir út í málið af aðstandendum hins raunverulega L-lista hafa þeir ekki haft þann manndóm í sér að svo mikið sem svara þeim spurningum eða athugasemdum sem þeim hafa borist,“ segir Víðir. Hann segir það “ besta falli ókurteisi að taka upp nafn stjórnmálahreyfingar sem er í fullu fjöri og gera að sínu,“ segir hann. „Ekki víst að þessu máli sé lokið.“

Þórhallur Heimisson svarar á bloggsíðunni og segir m.a.: „Reyndar var nú búið að segja formanni ykkar frá hvernig á þessu L-lista nafni stendur en ég skal með gleði ítreka það hér.

L-listi er á engan hátt nafn sem við höfum kosið okkur- það er Dómsmálaráðuneytið sem úthlutar okkur L sem listastaf – þó við sjálf hefðum kosið annað. Þú verður því að ræða málið þar á bæ – hjá ráðuneytinu. … Sjálfum er mér hjartanlega sama um hvaða staf við höfum – hann skiptir engu máli í mínum huga heldur hugsjón lýðræðisins sem ég berst fyrir. Og síst af öllu vil ég gera ykkur grikk! Bestu kveðju norður heiðar.“

Víðir svarar Þórhalli aftur og segir: „Eins og ég hef marg bent á snýst þetta ekki um listabókstafinn. Hann hefur oft verið notaður. Þetta snýst um nafnið á framboðinu eins og það er kynnt. L-listinn Það nafn er skráð en nýja framboðið notar þetta hikstalaust í sinni kynningu. Það myndi heyrast hjóð úr horni ef þeir notuðu nafn Sjálfsstæðisflokksins eða Samfylkingar.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is