Reinfeldt og Rasmussen vilja Ísland og Noreg með í ESB
Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra Danmerkur vill eindregið fá Noreg og Ísland í Evrópusambandið með hinum Norðurlöndunum.
Frederik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar þtti það líka „prýðilegt.“
Rasmussen sagði í Viðtalinu, þætti Boga Ágústssonar á RÚV í gærkvöldi, að hann hefði sterkar óskir í þessu sambandi. „Við vitum að Norðurlandaþjóðirnar eru svipaðrar skoðunar í langflestum málum. Það væri styrkur í því fyrir okkur ef við hefðum atkvæði Íslendinga og Norðmanna með okkur í ESB,“ sagði Rasmussen.
Hann sagði Dani að sjálfsögðu virða að þetta væri ákvarðanir sem teknar yrðu á Íslandi og í Noregi. „En við getum bara sagt að ákveði Íslendingar og Norðmenn einn daginn að ganga í ESB þá eru þeir hjartanlega velkomnir.
Svíar verða forystuþjóð ESB síðar á þessu ári. Frederik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, tók undir það með Rasmussen í viðtali í sama þætti. Hann sagði að það væri prýðilegt ef Ísland og Noregur gerðust aðilar að ESB, einfaldlega vegna þess að „við á Norðurlöndunum erum dugleg og lítum oft hlutina sömu augum.“
„Hagkerfin eru opin og við aðhyllumst frelsi í viðskiptum frekar en að hallast að verndarstefnu. En við virðum einnig að norrænu þjóðirnar verða að ákveða sig sjálfar. En ef þið sækið um þá styðjum við Svíar ykkur í því.“
Reinfeldt sagði að Svíar myndu sem forysturíki ESB leggja einkum áherslu á að ná Evrópuþjóðum saman um alþjóðlega samninginn í loftslagsmálum í Kaupmannahöfn í desember. Svíar leggja m.a. einnig áherslu á að samhæfa aðgerðir, stuðning og framlög til að koma fjármálakerfinu í betra horf og vinna gegn samdrætti.
Bogi ræddi við forsætisráðherrana þegar þeir voru hér á landi nýlega á norrænu hnattvæðingarþingi um græna orkustefnu.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is