Fimmtudagur 12.03.2009 - 12:50 - Ummæli ()

Alþingi: Forsætisráðherra bað Breiðavíkurdrengi afsökunar

johanna-sig2.jpgJóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra bað Breiðavíkurdrengi og aðra sem sætt hafa illri meðferð á heimilum ríkisins, afsökunar, fyrir hönd ríkisins, á Alþingi fyrir hádegi.

Frá þessu var sagt í hádegisfréttum RÚV.

Tilefni ummæli hennar var fyrirspurn frá Helga Hjörvar þingmanni Samfylkingarinnar um hvort þetta stæði til af hálfu ríkisins.

Georg Viðar Björnsson varaformaður Breiðavíkursamtakanna fagnaði orðum Jóhönnu í viðtali á Vísi. Haft var eftir honum: „Þetta hljómar mjög vel þó að það geti aldrei orðið neitt persónulegra en svo að Jóhanna sýnir þarna yndislegt fordæmi, að hún vill gera þetta og ganga fram fyrir þjóðina og biðjast afsökunar.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is