Julia óttast rauða dregilinn
Leikkonan Julia Roberts, sem er þaulvön sviðsljósinu, segir gönguna eftir rauða dreglinum skelfilega upplifun.
Julia mætti á frumsýningu kvikmyndarinnar Duplicity í London síðastliðinn þriðjudag, en stjarnan hefur verið í fríi um tíma.
„Rauði dregillinn er skelfilegur og ógnvekjandi, en jafnframt skemmtilegur,“ sagði Julia.
Julia var í eina tíð ein af hæst launuðu leikkonum heims en dró sig í hlé frá Hollywood árið 2004 þegar hún eignaðist tvíburana Hazel og Finn.
Hún hefur síðan eytt tímanum með eiginmanninum Danny Moder, syninum Henry, sem er 20 mánaða, og tvíburunum.
Nú er hún mætt aftur í glamúrinn vegna kvikmyndarinnar Duplicity og segist strax finna fyrir álaginu sem felst í því að standa undir kröfunum um að vera alltaf fáguð og glæsileg.
„Ég mátaði þrenns konar klæðnað áður en mér tókst að ákveða í hverju ég ætlaði að vera við sýninguna,“ sagði Julia.
Þrátt fyrir að leikkonan segist hafa notið þess að leika í myndinni, sem fjallar um njósnara sem taka sig saman um flókin svik, er hún ekkert óð og uppvæg að skrifa upp á nýjan kvikmyndasamning.
„Ég finn ekki hjá mér mikla hvatningu til að vinna, en hinsvegar finn ég fyrir hvatningu til að gera góðar myndir, þær reka bara ekki oft á fjörur manns.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is