Forstjóri Kjalars virkur þátttakandi í umræðum á Eyjunni um ábyrgð á bankahruninu
Hjörleifur Jakobsson forstjóri eignarhaldsfélagsins Kjalars hefur í dag tekið virkan þátt í umræðum sem spunnist hafa á Eyjunni í framhald af frétt okkar um skrif hans í Fréttablaðinu þar sem gagnrýni á íslenska útrásarvíkinga og bankamenn er líkt við alræmdar kommúnistaofsóknir McCarthys í Bandaríkjunum eftir seinna stríð.
Um hálf sexleytið í dag höfðu rúmlega 150 athugasemdir birst við frétt Eyjunnar. Flestir gagnrýna skrif Hjörleifs og biðja um frekari skýringar á orðum hans. Hefur Hjörleifur ritað fjölmargar athugasemdir til að skýra mál sitt.
„Þetta er einn af mönnunum sem setti heimilin í landinu á hausinn með aðförinni að íslensku krónunni“, segir Egill Helgason sem einnig hefur tekið þátt í umræðunum.
Þessu hafnar Hjörleifur alfarið. Í fyrstu athugasemdinni sem hann birtir við fréttina segir orðrétt:
Ágætu bloggarar
1) Grein mín í morgun bar titilinn Eru bankamenn “kommúnistar” samtímans? Titilinn var því miður styttur. Eflaust líður greinin fyrir höfundinn sem er sannfærður um að hér séu orð í tíma töluð.
2) Eignir Kjalars eru nær allar í íslenskum verðbréfum. Að hafa lánin í erlendri mynt er því óeðlileg áhætta. Að saka Kjalar um að taka stöðu á móti krónunni vegna þess að skuldir eru hafðar í íslenskum krónum er svona álíka vitlaust og að segja almenningi að hann eigi að taka húsnæðislán í erlendri mynt annars sé almenningur að taka stöðu á móti krónunni. Ef ÁS og fleiri skilja það ekki eða vilja ekki skilja er því miður lítið við því að gera.
3) Stjórnendur og eigendur bankanna eru að sjálfssögðu á endanum ábyrgir fyrir falli bankanna og viðurkenna þá ábyrgð. Þeim til vorkunnar má þó benda á að varla er til sá banki í vestrænum heimi sem hefur annaðhvort ekki farið á hausinn eða fengið verulega ríkisaðstoð. Það er jú heimskreppa.
4) Bankahrunið er ekki nema að litlu leyti ástæða atvinnuleysi og kreppu á Íslandi. Það er mikil yfireinföldun. Menn eru kannski búnir að gleyma því að löngu fyrir hrun bankanna var byggingariðnaður hér frosinn og innflutningur á varanlegum neysluvörum á fallandi fæti. Grunnvandinn liggur í ríkisfjármálum undanfarinna ára, skuldasöfnun hins opinbera og alls almennings og gjaldmiðli sem ekki virkar. Þetta vill bara enginn tala um.
5) Kjalar og aðstendur þess félags fagna allri rannsókn. Við erum 100% öryggir að við brutum engin lög og það mun allt koma í ljós. Þangað til verða berserkir bloggsins að hafa sína hentisemi í orðavali.
Einn þátttakenda, Haraldur Guðnasaon, skrifar:
Hjörleifur: Þú segir að “Ekkert dótturfélag Kjalars eða félag í eigu hluthafa Kjalars tók stöðu á móti krónunni.”
Því langar mig að minna þig á – ef ske kynni að þú hafir gleymt því – að kröfur Kjalar vegna gjaldeyrisskiptasamninga eru 190 milljarðar króna.
Eitt-hundar-og-níutíu MILLJARÐAR !!! Næstum því þrefalt IceSave tjónið (ef miðað er við hófsamar spár).
Kröfur Exista á íslensku bankana vegna gjaldeyrisskiptasamninga voru einungis 120 til 140 milljarðar króna.
Ef þetta er ekki að “taka stöðu á móti krónunni” … tjah, þá vitum við eiginlega ekki hvað það er. Auðvitað átti krónan aldrei séns þegar gammar á borð við ykkur lögðust á hana með þessum hætti.
Mundu svo hvað stendur í Hávamálum: “Deyr fé, deyja frændur … En orðstír deyr aldrei”.
Eitthvað sem þið Ólafur mættuð hafa í huga.
Þessu svarar Hjörleifur:
Ágæti Haraldur
Kjalar tók ekki stöðu á móti krónunni. Eignir okkar eru íslenskar og því vildum við hafa skuldir okkar í íslenskum krónum. Þetta get ég allt saman sýnt þér ef þú hefur áhuga. Krafa okkar er vegna gjaldmiðlaskiptasamnninga ( sem eru tæki til að stilla samsetningu skulda) eru á gömlu bankana en ekki þá nýju. Ef Kjalar nær árangri með þá kröfu þá mun það í raun gagnast landsmönnum því þá getur félagið greitt meira af skuldum sínum til íslensku bankanna.
Umræðurnar verða ekki raktar frekar hér, enda aðgengilegar lesendum Eyjunnar á vefnum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is