Laugardagur 14.03.2009 - 18:07 - Ummæli ()

Illugi með yfirburðafylgi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík

illugi-gunnarsson2.jpgIllugi Gunnarsson virðist ætla að vinna yfirburðasigur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Þegar talin höfðu verið 1595 atkvæði af rúmlega 7000 var hann með 966 atkvæði í 1. sæti.

Helsti keppinautur hans, Guðlaugur Þór Þórðarson, er með mun færri atkvæði eða 549 atkvæði í 1.-2. sæti.

Röð næstu manna er þessi:

3. Pétur Blöndal með 756 atkvæði

4. Ólöf Nordal með 586 atkv.

5. Sigurður Kári Kristjánsson með 642 atkv.

6. Birgir Ármannsson með 581 atkv.

7. Ásta Möller með 630 atkvæði

8. Þórlindur Kjartansson með 598 atkv.

9. Erla Óska Ásgeirsdóttir með 614 atkvæði

10. Sigríður A. Andersen með 672 atkv.

11. Gréta Ingþórsdóttir með 642 atkv.

12. Jórunn Frímannsdóttir með 617 atkv.

 Athygli vekur að Jón Magnússon alþingismaður, sem nýlega gekk úr Frjálslynda flokknum og í Sjálfstæðisflokkinn, er ekki á meðal tólf efstu samkvæmt fyrstu tölum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is