Laugardagur 14.03.2009 - 10:55 - Ummæli ()

Sigmundur Davíð: Fulltrúi AGS var sammála niðurfellingu skulda. Öll áhersla ríkisstjórnar á að rífa niður

sigmundurdavid1.jpgSigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins fullyrðir  á Eyjubloggi sínu í dag að fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) á Íslandi hafi á fundi fyrir nokkru síðan lýst sig sammála um allar forsendur og nauðsyn þess að fara í flatar lánaafskriftir eins og Framsóknarflokkurinn hefur lagt til.

Framsóknarmenn hafa sett fram tillögu um 20% almenna niðurfellingu lána, en stjórnarflokkarnir hafa hafnað þeirri leið.

Mark Flanagan starfsmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafnaði hugmyndum um kerfisbundna 20% niðurfellingu skulda á fundi með blaðamönnum í gær og sagði hana óraunhæfa og ómarkvissa.
 
Sigmundur Davíð segir að þessi yfirlýsing sé mjög í andstöðu við það sem fram fór á fundi sem hann hafi setið með fulltrúum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.  Flanagan hafi þó gert sér (þ.e. Sigmundi) grein fyrir því að hlutverk hans væri fyrst og fremst að „bakka upp” þau stjórnvöld sem ríktu hverju sinni.
 
Sigmundur Davíð segir að forsætisráðuneytinu og þingmönnum Samfylkingarinnar hafi einhverra hluta vegna verið mikið í mun að kveða í kútinn tillögu framsóknarmanna um að afskriftir af skuldum Íslendinga verði látnar ganga áfram til skuldaranna. Í þetta hafi verið eytt óvenju miklu púðri, eins og sjáist best á því að enn sé vakið máls á hugmyndinni (sem hafi aðeins verið ein af 18 samhangandi aðgerðum í efnahagstillögum flokksins) í því augnamiði að gera lítið úr henni.

Sigmundur Davíð segir að í þessu skyni hafi m.a. verið sett færsla inná heimasíðu forsætisráðuneytisins. Færslan hafi svo fjarlægð af vefsíðunni skömmu síðar. „Væntanlega eftir að menn þar á bæ gerðu sér grein fyrir að athugasemdirnar hefðu verið vanhugsaðar“, segir hann.
 
„Nú hefur hins vegar verið gengið skrefinu lengra og fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins blandað í málið í von um að tryggja mætti endalok hugmynda um jafnræði skuldara. Þetta voru tillögur sem ráðgjafar okkar töldu raunhæfastar. Það er allt í lagi að vera ósammála þeim. Þegar stjórnmálamenn hafna tillögunum alfarið ættu þeir þó að geta bent á betri leið (tillögurnar má eflaust bæta eins og aðrar hugmyndir). En því var ekki að heilsa hjá stjórnarflokkunum. Þeir kepptust við að snúa útúr, t.d. með fullyrðingum um hvað tillögurnar mundu kosta mikið (þó að í raun snúist þær ekki um að auka útgjöld heldur að lágmarka tap). Stjórnvöld, sem þó hafa það hlutverk að koma með lausnir komu ekki með neitt á móti. Öll áherslan var á að rífa niður“, skrifar Sigmundur Davíð.

Sigmundur Davíð segir að hagfræðiprófessorinn Nouriel Roubini, sem nú sé ráðgjafi stjórnvalda víða um heim og jafnvel kallaður „spámaðurinn“ af Prakash Loungani hagfræðingi hjá AGS, sé sammála hugmyndinni um flata niðurfellingu skulda. Hann hafi hins vegar verið hafður að háði og spotti þegar hann kynnti viðhorf sín upphaflega.

Formaður Framsóknarflokksins lýkur pistlinum á Eyjublogginu með þessum orðum:

Hverjum ætlarðu að trúa? Lágtsettum erindreka frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum sem hefur helst það hlutverk að veita ríkjandi stjórnvöldum liðsinni eða eftirsóttasta hagfræðingi heims sem hefur áunnið sér traust með því að segja það sem aðrir þorðu ekki að segja síðastliðin þrjú ár og hafa alltaf haft rétt fyrir sér?


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is