Sunnudagur 15.03.2009 - 19:51 - Ummæli ()

Framsókn: Birkir Jón í efsta sæti í Norðausturkjördæmi. Höskuldur í öðru sæti

birkir-jon1.jpgBirkir Jón Jónsson, alþingismaður, sigraði í prófkjöri Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi. Hann hlaut 505 atkvæði í fyrsta sæti. Höskuldur Þórhallsson hlaut 647 atkvæði í 1.-2. sætið.

Frá þessu er sagt á vef Framsóknarflokksins.

Fram kemur að Huld Aðalbjarnardóttir menningar- og fræðslufulltrúi Norðurþings hafi orðið í þriðja sæti, en hún hlaut 509 atkvæði í 1.-3. sæti. Sigfús Karlsson, framkvæmdastjóri skipar fjórða sæti listans, hann hlaut 304 atkvæði í 1.-4. sæti.

Framsóknarflokkurinn fékk þrjá menn kjörna í Norðausturkjördæmi í þingkosningunum vorið 2007.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is