Gísli Marteinn: Sigurvegar próf- kjörsins í Reykjavík utan innsta valdakjarna flokksins
Sigurvegarnir þrír í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykajvík í gær, Illugi Gunnarsson, Pétur Blöndal og Ólöf Nordal, voru öll utan innsta valdakjarnans í Sjálfstæðisflokknum undanfarin ár. Ekkert þeirra sat í ríkisstjórn og raunar voru þau öll fremur gagnrýnin á ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar.
Þetta segir Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík á Eyjubloggi sínu í dag.
Gísli Marteinn segir að þeir sjálfstæðismenn sem sátu í ríkisstjórninni hafi ýmist ákveðið að hætta fyrir þetta prófkjör, sett stefnuna neðar en áður eða beðið ósigur. „Ekkert þeirra þriggja sem hrepptu fyrsta sætið í Reykjavík, Kraganum eða Suðurlandi höfðu áður verið oddvitar kjördæmisins, heldur stíga fram sem nýir, fremur ungir og glæsilegir leiðtogar. Þetta eru kynslóðaskipti og skýr skilaboð frá sjálfstæðisfólki,“ segir hann.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is