Helgi Hjörvar: Vill að lífeyrissjóðir fái að eiga og reka íbúðarhúsnæði
Helkgi Hjörvar þingmaður Samfylkingarinnar vill koma hreyfingu á fasteignarmakaðinn á ný með því að heimila lífeyrissjóðum að eiga og reka íbúðarhúsnæði. Hann telur að slíkt fyrirkomulag geti einnig stuðlað að auknum stöðugleika á markaðnum og skapað grundvöll fyrir öflugri leigumarkaði.
Helgi hefur ásamt fjórum öðrum þingmönnum Samfylkingarinnar lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingu á lögum um starfsemi lífeyrissjóða sem felur í sér ofangreindar heimildir. Helgi segir í pistli á heimasíðu sinni að þessum sjónarmiðum um þátttöku lífeyrissjóða á íbúðarmarkaði hafi verið haldið á lofti undanfarið, enda ekki hægt að sjá hvað mæli gegn því að sjóðunum yrði veitt slík heimild, því það sé ekki verið að skylda þá til neins.
Í greinargerð með frumvarpinu segir að fordæmi séu fyrir heimild af þessu tagi í öðrum löndum, m.a. á Norðurlöndum og í Þýskalandi. Aukið hlutfall fasteigna í félagslegri eigu sé til þess fallið að stuðla að stöðugleika á fasteignamarkaði. Þar með sé dregið úr þeim neikvæðu áhrifum sem verðsveiflur á fasteignamarkaði hafi á efnahagslífið.
Þá segir í greinargerðinni að ekki verði séð að íbúðarhúsnæði til handa fólkinu í landinu sé síðri fjárfesting en erlend hlutabréf sem sjóðirnir hafa lögfesta heimild til að fjárfesta í. Fjárfesting í fasteignum sé kannski ekki til þess fallin að skila skammtímahagnaði en sé góð langtímafjárfesting og ætti því að samrýmast vel fjárfestingarstefnu lífeyrissjóðanna.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is