Mánudagur 16.03.2009 - 11:52 - Ummæli ()

Alþingi í dag: Bjarni Ben spyr viðskiptaráðherra um endurreisn bankakerfisins

bjarniben.jpgUmræður verða utan dagskrár á Alþingi kl. 15.30 í dag um endurreisn bankakerfisins. Það er Bjarni Benediktsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem er málshefjandi en til andsvara er Gylfi Magnússon. Umræðurnar munu standa yfir í um það bil hálftíma.

Þingfundur hefst kl. 15 með óundurbúnum fyrirspurnum til ráðherra. Þá verður kosið nýtt bankaráð Seðlabankans. Síðan verða tekin fyrir nokkur frumvörp og þingsályktunartillögur, þar á meðal frumvarp dómsmálaráðherra um greiðsluaðlögin. Verða greidd atkvæði um frumvarpið til 3. umræðu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is