Mánudagur 16.03.2009 - 11:30 - Ummæli ()

„Fyrirsætur“ Tyra Banks í hræðslu-kasti

tyra_banks_smug.jpgAllt fór á annan endann á Manhattan um helgina þegar ofurfyrirsætan Tyra Banks hugðist velja „kandidata“ í þrettándu þáttaröð Americas Next Top Model.

Þúsundir eftirvæntingarfullra stúlkna haldnar fyrirsætudraumum biðu fyrir utan hótelið þar sem áheyrnarpróf fóru fram þegar hræðsla greip um sig og allt fór úr böndunum.

Lögregla stöðvaði prufurnar, en ekki ber öllum saman um hvað kom látunum af stað. Ein skýringin er sú að hópur stúlkna hafi skyndilega æpt yfir hópinn að sprengja væri á staðnum.

Lögreglan hefur ekki staðfest þetta, en þrír voru handteknir og sex slösuðust.

Föt og skór voru skilin eftir um allar jarðir þegar hópar skrækjandi stúlkna reyndu að forða sér, en margar þeirra höfðu beðið við hótelið alla nóttina, ýmist með stóla eða svefnpoka meðferðis.

Það bætti svo ekki úr skák þegar maður tróð sér inn í þvöguna til að stela handtöskum.

Af þeim sex sem slösuðust voru aðeins tveir fluttir á sjúkrahús, en þeir sem voru handteknir voru sakaðir um að hafa hvatt til óeirða og hagað sér ósæmilega.

CW-sjónvarpsstöðin, sem framleiðir þættina, mun standa að rannsókn á uppákomunni ásamt yfirvöldum.

Sem fyrr segir var um að ræða þátttakendur í 13. þáttaröðinni um næstu ofurfyrirsætu Bandaríkjanna, en í þetta skipti mun valið standa milli 12 stúlkna sem eru lágvaxnari en gengur og gerist um fyrirsætur, þar sem skilyrðin eru að þær séu ekki hærri en 1.70.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is