Þriðjudagur 17.03.2009 - 12:26 - Ummæli ()

Madonna vill ættleiða annað barn frá Malaví

madonnaogsonur.jpgDavid Banda, þriggja ára ættleiddur sonur söngkonunnar síungu, Madonnu, eignast hugsanlega stjúpsystkini úr heimalandinu innan tíðar.

„Ég hef verið að velta þessu fyrir mér, en læt ekki verða af því nema ég fái stuðning stjórnvalda og íbúa Malaví,“ segir Madonna.

Hún hefur margsinnis lýst því yfir að hún vilji ættleiða fleiri börn og segir að margir, ekki síst vinir hennar frá Malaví, séu þeirrar skoðunar að David eigi að eignast systkini frá heimalandinu.

Ættleiðingin á David árið 2006 var umdeild og var Madonna til skamms tíma allt að því sökuð um að hafa rænt drengnum.

„Þessi ættleiðing varð til þess að lög um ættleiðingar voru innleidd í Malaví, ég er því eins
konar fyrirmynd hvað ættleiðingar framtíðarinnar varðar,“  segir  Madonna.

Söngkonan segist líka vilja að David eigi rætur í heimalandinu. „Það er forgangsverkefni að sonur minn kynnist heimsmenningunni en haldi samt tengslunum við menningu Malaví. Hann er með landakort af heiminum í herberginu sínu, á því er fullt af örvum sem benda á Malaví.“

Og þrátt fyrir skilnað við Guy Ritchie nýverið hvetur hún son sinn til þess að halda nánum tengslum við föður sinn.

„Öll samskipti okkar á milli eru mjög vinsamleg, við erum bæði sammála um að börnin eigi að tengjast báðum foreldrum jafnmikið,“ segir Madonna.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is