Björgólfur Thor: Með um tuttugu félög í Lúxemborg en nafnið hvergi á blaði
Þrátt fyrir að í Lúxemborg séu skráð níu mismunandi Novator-félög og að minnsta kosti tíu önnur félög, sem virðast tengjast auðmanninum Björgólfi Thor Björgólfssyni, er nafn hans hvergi að finna í skráðum gjörningum í lögbirtingablaðinu þar í landi.
Eina félagið sem bendir beint til Björgólfs Thors er félag á Tortólu-eyju sem heitir Beeteebee, upphafsstafir hans stafaðir á ensku. Það félag lagði stofnfé í Lúxemborgar-félag sem tengist Björgólfi Thor.
Sama hátt hefur fjöldi íslenskra kaupsýslumanna haft á umsvifum sínum í skattaskjólum erlendis.
Þetta kemur fram í grein um falda eigendur íslenskra félaga í Lúxemborg sem Sigrún Davíðsdóttir skrifar í nýjasta tölublað Tíundar, fréttablaðs ríkisskattstjóra.
Björgólfur Thor Björgólfsson er enn talinn auðugastur Íslendinga þrátt fyrir að hafa orðið fyrir miklum skakkaföllum í bankahruninu og alþjóðlegu fjármálakreppunni. Hann hefur stundað fjárfestingar víða um lönd. Sigrún Davíðsdóttir segir í greininni í Tíund að að baki félaga sem hann á eða á í og eru í rekstri liggi víðtækt og ekki sérlega sýnilegt net eignarhaldsfyrirtækja sem spannar mörg lönd. Út frá félögum Björgólfs Thors í Lúxemborg megi sjá að hann tengist félögum á Cayman-eyjum, í Delaware, á Gíbraltar, Guernsey, Tortólu, Tyrklandi, Íslandi og Tékklandi að ógleymdri Kýpur.
„Þarna koma því fyrir margir þeirra staða sem eru þekktir fyrir að vera skjól umsvifa sem á að halda utan sjónmáls skattyfirvalda og annarra eftirlitsstofnana“ segir Sigrún.
Grein Sigrúnar Davíðsdóttur og annað efni Tíundar má lesa hér.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is