Fimmtudagur 19.03.2009 - 12:28 - Ummæli ()

Jamie skotspónn mótmælenda

800px-fifteen_restaurant.jpgoliver.jpgDýraverndarsamtökin Peta í Bretlandi hafa látið öllum illum látum  fyrir utan veitingahús Jamie Olivers, Fifteen í Norður-London, þar sem þau mótmæla sölu Jamie á svínakjöti.

Meðal mótmælenda voru þungaðar konur sem hnipruðu sig saman í rimlakössum og héldu á mótmælaspjöldum með áletrunum á borð við „Dapurlegur mæðradagur fyrir breskar gyltur“.

Í sjónvarpsþætti stjörnukokksins á Stöð 4, „Jamie Saves Our Bacon“, skoðaði Jamie ástandið á svínabúum í Evrópu, þar sem meðal annars var sýnt  hvernig gyltum sem gengu með grísi var haldið í búrum í allt að fjóra mánuði, stundum svo litlum að þær gátu ekki snúið sér við.

joliversows2.jpg

Margir eru hissa á mótmælunum þar sem Jamie hefur í framhaldi af þessu hvatt fólk til að kaupa breskt svínakjöt, þar sem svín í Bretlandi fái góða meðferð.

Talsmaður Jamie sagði hann vera mikinn stuðningsmann þess að vel væri búið að dýrum og á matseðlinum væri svínakjötið kynnt sem „the happiest pigs you can get“.

„Mótmælendur beina reiði sinni að manni sem hefur stutt dýraverndunararmálstaðinn dygglegar en flestir aðrir,“ sagði hann og  bætti því við að mótmælendur mættu mótmæla eins og þá lifandi lysti, hann hefði aðallega áhyggjur af að þeim yrði kalt.

„Við sögðum aldrei í þættinum að bresk svínarækt væri hvítari en hvít, þetta var allt mjög yfirvegað hjá okkur,“ sagði talsmaðurinn.

Peta-samtökin segja að eina leiðin til að bjarga svínum sé að gerast grænmetisæta.

„Við erum að biðla til fólks um að hafa samúð með gyltum sem þjást  meðan þær ganga með afkvæmin,“ sagði Lynzi Waddington, einn mótmælenda. „Það er ekki hægt að borða kjöt sem er framleitt undir slíkum þjáningum.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is