Laugardagur 21.03.2009 - 14:56 - Ummæli ()

Framboðslisti Samfylkingar í NV

Á kjördæmisþingi Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi sem haldið er á
Akranesi í dag, var samþykktur framboðslisti flokksins fyrir komandi
alþingiskosningar.

Á listanum eru jafn margar konur og karlar og hlutfall kynja er jafnt í efstu tíu sætunum.

Þær breytingar hafa orðið frá prófkjöri  flokksins að sr. Karl V. Matthíasson hefur yfirgefið flokkinn og skipar því ekki 4. sæti listans.

Þórður Már Jónsson á Bifröst, Anna KristínGunnarsdóttir á Sauðárkróki og Ragnar Jörundsson á Patreksfirði færast því upp um eitt sæti frá úrslitum prófkjörsins.Guðbjartur Hannesson, Ólína Þorvarðardóttir og Arna Lára Jónsdóttir skipa þrjú efstu sætin.

Listinn er þannig í heild sinni:

1. Guðbjartur Hannesson, alþingismaður,  300 Akranesi.

2. Ólína Þorvarðardóttir,þjóðfræðingur,   400 Ísafirði.

3. Arna Lára Jónsdóttir, verkefnastjóri,  400 Ísafirði.

4. Þórður Már Jónsson, viðskiptalögfræðingur,  311 Borgarfirði.

5. Anna Kristín Gunnarsdóttir,nemi og varaþingmaður,  550 Sauðárkróki.

6. Ragnar Jörundsson, bæjarstjóri,  450 Patreksfirði.

7. Hulda Skúladóttir, kennslu- og námsráðgjafi,  360 Hellisandi.

8. Valdimar Guðmannsson, iðnverkamaður,   540 Blönduósi.

9. Einar Benediktsson,  verkamaður,     300 Akranesi.

10. Kristín Sigurrós Einarsdóttir,  verkefnastjóri,   510 Hólmavík.

11. Ragnhildur Sigurðardóttir,   umhverfisfræðingur og bóndi,  356 Snæfellsnesi.

12. Hörður Unnsteinsson,  stjórnmálafræðinemi,    310 Borgarnesi.

13. Guðrún Helgadóttir,  háskólakennari,     550 Sauðarárkróki.

14. Jón Hákon Ágústsson,  sjómaður,  465 Bíldudal.

15.  Ásdís Sigtryggsdóttir,  vaktstjóri,   300 Akranesi.

16. Sigurður Þór Ágústsson,  skólastjóri,  531 Hvammstanga.

17. Johanna E. Van Schalkwyk,  framhaldsskólakennari,   350 Grundarfirði.

18. Karvel Pálmason,  fv. alþingismaður,   415 Bolungarvík.

Komi til breytinga á kosningalögum fyrir komandi alþingiskosningar ítrekar kjördæmisráð ályktun sína frá kjördæmisþingi í Borgarnesi 21.febrúar um að styðja það mál.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is