Háskólinn í Reykjavík öllum opinn í dag
Háskólinn í Reykjavík opnar dyr sínar upp á gátt fyrir þjóðinni í dag, en þá verður HR-dagurinn haldinn hátíðlegur.
Í aðalbyggingu skólans, Ofanleiti 2, verður hægt að kynna sér nám við allar deildir skólans og veita kennarar og nemendur upplýsingar og ráðgjöf. Enn fremur verða námsráðgjafar á staðnum.
Fræðimenn HR standa fyrir fyrirlestrarmaraþoni í aðalbyggingu HR. Þar verða fluttir 42 fyrirlestrar frá klukkan 11 til 18. Hver fyrirlestur verður átta mínútna langur og viðfangsefnin fjölbreytt.
Dæmi um fyrirlestra:
Saga hrunsins.
Tölvan eftir 100 ár.
Rannsóknir á ómönnuðum kafbátum og flugvélum.
Hræringar í fjárhag lífeyrissjóðanna.
Málefni barna og foreldra.
Hvað er viðskiptasiðferði?
Möguleikar Íslands til að verða alþjóðleg umskipunarhöfn innan 20 ára.
Greind geimför.
Er íslenskur vinnumarkaður sveigjanlegur?
Traust í samningaviðræðum.
Nánari upplýsingar um dagskrá fyrirlestramaraþonsins má finna á
www.hr.is/hrdagurinn.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is