Þriðjudagur 24.03.2009 - 08:29 - Ummæli ()

Samfylkingin endurgreiðir styrk frá Íslandspósti – hyggst herða verklagsreglur sínar

samfylkingin1.jpgSigrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, segir flokkinn ætla að endurgreiða styrk sem flokkurinn þáði frá Íslandspósti árið 2007 og nam 150.000 krónum.

Hún sagði í samtali við RÚV að Samfylkingin harmaði mistökin og hyggist herða verklagsreglur sínar eins og Sjálfstæðisflokkurinn, sem þegar hefur skilað einum styrk.

Nýlega birti ríkisendurskoðun í fyrsta sinn útdrátt úr uppgjöri stjórmálaflokka í samræmi við ákvæði laga um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra.

Í gær ákvað Sjálfstæðisflokkurinn að endurgreiða styrk sem hann þáði frá Neyðarlínunni.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is