Sigurður Einarsson um trúnaðarskjal Seðlabanka: Aldrei séð jafn lélegt og illa skrifað plagg
Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, segir í samtali við DV að hann hafi aldrei á 25 ára starfsferli sínum séð jafn lélegt og illa skrifað plagg og trúnaðarskjal Seðlabankans.
Hann segir erfitt að sannreyna það sem komi fram í skjalinu þar sem engin nöfn viðmælenda eða banka komi fram, ekki einu sinni þeirra Seðlabankamanna sem sóttu fundina í London.
Þá segir Sigurður hróplegt ósamræmi milli stöðunnar eins og henni sé lýst í minnisblaðinu og þess sem síðar gerðist og bendir á að engir tapi innistæðum sínum í Kaupþingi.
Þar hafi staða peningasjóða og lífeyrissjóða verið með ágætum og ekki horfur á að króna falli á íslenska skattgreiðendur vegna innistæðureikninga í Kaupþingi.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is