Miðvikudagur 25.03.2009 - 11:54 - Ummæli ()

Jóhanna hjá ASÍ: Hafnar algjörlega öllum hugmyndum um flata niðurfellingu húsnæðisskulda

johanna-sig5.jpgJóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hafnaði algjörlega öllum hugmyndum um flata niðurfellingu húsnæðisskulda í ræðu sem hún flutti á aukaársfundi Alþýðusambandsins í morgun.

Frá ræðu hennar er sagt á fréttavef Morgunblaðsins.

Jóhanna sagði að almenningur myndi þurfa að borga hinar niðurfelldu skuldir í formi hærra skatta. Heildarkostnaðurinn yrði væntanlega um 8-900 milljarða króna eða 10 milljónir á hverja fjögurra manna fjölskyldu.

Jóhanna hafnaði jafnt hugmyndum framsóknarmanna um 20% niðurfellingu allra fasteignaskulda sem hugmyndum úr röðum Vinstri grænna um fasta 4 milljóna króna niðurfellingu húsnæðisskulda.

Forsætisráðherra bað fulltrúa verkalýðsins líka að líta í eigin barm. Hún sagði að uppræta þyrfti spillingu og ofurlaun innan verkalýðshreyfingarinnar og taldi ástæðu til að endurskoða meðal annars greiðslur innan ASÍ, að því er kemur fram í frétt RÚV.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is