Gunnar Páll Pálsson fær tæplega sjö milljónir í laun frá VR eftir að hann hættir störfum
Gunnar Páll Pálsson, fráfarandi formaður VR, heldur fullum launum í hálft ár eftir að hann lætur af störfum sem formaður félagsins.
Gunnar Páll hefur fengið 1.150 þúsund krónur í mánaðarlaun fyrir formennsku í félaginu og stjórnarformennsku í Lífeyrissjóði verslunarmanna og heldur þeim launum í hálft ár frá starfslokum.
Hann fær því alls 6,9 milljónir króna frá verkalýðsfélaginu eftir að hann hættir störfum.
Nýkjörinn formaður VR, Kristinn Örn Jóhannesson, er ósáttur við að félagið skuli greiða Gunnari þessa fjárhæð og segist ekki hafa komið að þeirri ákvörðun.
Í nóvember síðastliðnum bað Gunnar Páll um svigrúm til að endurreisa traust sitt innan VR í kjölfar þess að hann, sem stjórnarmaður í gamla Kaupþingi, samþykkti að fella niður lán starfsmanna fyrir hlutabréfum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is