Gögn sýna að Geiri í Goldfinger hefur a.m.k. tvívegis styrkt kosningabaráttu VG
Ásgeir Davíðsson, sem rekur hinn umdeilda nektardansstað Goldfinger í Smiðjuhverfinu í Kópavogi, hefur a.m.k. tvívegis styrkt kosningabaráttu Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs. Styrktarlínur frá honum birtust í flokksblaði VG í Kópavogi 2002 og 2006. Ásgeir – Geiri í Goldfinger eins og hann er yfirleitt nefndur – fullyrðir að hann hafi einnig styrkt VG í kosningabaráttunni 2007, en Drífa Snædal framkvæmdastýra flokksins segist ekki sjá nein merki um það í bókhaldinu.
Drífa Snædal segir í viðtali við vefritið Smuguna í dag að aðeins eitt dæmi sé um styrk frá Ásgeiri. Árið 2002 hafi styrktarlína frá fyrirtækinu sem rekur Goldfinger, Baltik ehf, fyrir mistök slæðst inn í svæðisblað Vinstri grænna í Kópavogi. Utanaðkomandi fyrirtæki hafi séð um auglýsingasöfnun fyrir blaðið. „Við þessu var brugðist með því að gefa fyrirtækinu þau skilaboð að ekki ætti að rukka fyrir þetta, þar sem ekki þótti eðlilegt að þiggja greiðslu frá þessu fyrirtæki þrátt fyrir þau mistök að hafa birt línuna,“ er haft eftir Drífu.
Athygli Eyjunnar hefur verið vakin á því að fjórum árum seinna hafi Kópur, blað VG í Kópavogi, aftur birt styrktarlínu frá Geira í Goldfinger eins og meðfylgjandi úrklippa úr blaðinu sýnir.

Nafnið Baltik ehf ætti ekki að vera bæjarfulltrúum VG í Kópavogi ókunnugt því það er jafnan notað í umræðum í bæjarstjórn og nefndum Kópavogs þegar málefni súlustaðarins eru rædd. Þannig er talað um Baltik ehf í bókun Ólafs Þórs Gunnarssonar bæjarfulltrúa VG á bæjarráðsfundi í september í fyrra. Þar segir „VG fagna því að bæjarráð lýsi sig andvígt nektardansi í Kópavogi. Undirritaður er sömu skoðunar, en hefði viljað ganga lengra í takmörkun rekstrarleyfis, með synjun á leyfi til nektardans fyrir Baltik ehf (Goldfinger). VG er að öðru leyti fylgjandi fyrirliggjandi tillögu.“
Ásgeir Davíðsson er staddur í orlofi í Tælandi. Hann segist ætla að biðja endurskoðanda sinn að birta gögn um hvernig stuðningi fyrirtækja hans við VG var háttað í kosningum 2007 þegar hann kemur til landsins.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is