Sigmundur Davíð: Framsókn hefur misst þolinmæðina
Framsóknarmenn hafa misst þolinamæðina gagnvart minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins sagði í viðtali á Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun að þó að þessi ríkisstjórn hafi verið eini kosturinn þar sem þjóðstjórn hafi ekki verið möguleg, „þá sé þetta ekki stjórn sem Framsóknarflokkurinn vill taka ábyrgð á lengur en nauðsynlegt er.“
„Þolinmæðin er í sjálfu sér þrotin,“ sagði Sigmundur, en að það væri of stutt til kosninga til að „fara að að valda hér algerri óvissu og stjórnleysi jafnvel.“
Sigmundur Davíð sagði að sér þætti „ýmis merki á lofti um að þetta stjórnarmynstur væri heldur varasamt til lengri tíma litið ef ekki kæmi einhver þarna að til að drífa stjórnina áfram í það sem þyrfti að gera og bremsa hana af líka í vissum atriðum.“
Sigmundur Davíð baðst afsökunar á því í viðtalinu fyrir hönd Framsóknarflokksins hvernig staðið var að einkavæðingu ríkisbankanna fyrir nokkrum árum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is