Þriðjudagur 31.03.2009 - 08:38 - Ummæli ()

Nýtt frumvarp um ábyrgðarmenn á lánum einstaklinga – ekki hægt að ganga að eignum ábyrgðarmanna

ludvikbergv1.jpgFrumvarp Lúðvíks Bergvinssonar, þingmanns Samfylkingar, um að ábyrgðarmenn fyrir lántökum einstaklinga í núverandi mynd verði lagt niður, var samþykkt á Alþingi í gær með 32 samhljóða atkvæðum þingmanna.

Þetta kom fram í morgunfréttum RÚV.

Ekki verður hægt að ganga að eignum ábyrgðarmanna lengur, en Lúðvík hefur reynt að fá þessar breytingar samþykktar á þingi í næstum áratug.

Samkvæmt nýju lögunum þurfa fjármálastofnanir að leggja fram ítarlegar upplýsingar um stöðuna og þá áhættu sem ábyrgðarmaður tekur.

Nýja Kaupþing hefur þegar lagt niður ábyrgðamannakerfi sitt og krefst ekki ábyrgðar á nýjum lánum. Þess í stað lánar bankinn í samræmi við greiðslugetu fólks.

Lúðvík gaf frá sér yfirlýsingu 19. febrúar síðastliðinn um að  hann myndi hætta þingmennsku eftir 14 ára setu á Alþingi og ekki leita eftir endurkjöri í komandi alþingiskosningum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is