Jón Steinsson: Rangar ákvarðanir Seðlabankans dýrari en Icesave
Seðlabankinn tók ónýt veð, skuldabréf bankanna, fyrir mörg hundruð milljarða lánum til þeirra rétt fyrir hrunið í haust, segir Jón Steinsson dósent í hagfræði við Columbia háskólann.
Jón sagði í viðtali í Speglinum á RÚV í kvöld að tap þjóðarinnar vegna þessa verði miklu meira en vegna Icesave reikninganna og hefði aldrei þurft að gerast. Hnn segir þetta einhver stærstu mistök stjórnvalda á síðasta ári.
Jón segir að Seðlabankinn hefði getað tekið aðrar eignir bankanna sem veð, t.d. útlánasöfn bankanna, lán bankanna til heimila og fyrirtækja – eignir sem voru einhvers virði og sparað með því íslensku þjóðinni nokkur hundruð milljarða króna. Hann segir þekkingarleysi bankastjóra Seðlabankansum að kenna og að þá hafi skort djúpan skilning á stöðunni.
„Þetta er stærsti baggi ríkisins, af öllu því sem gerðist,“ segir Jón.
Nánar hér á vef RÚV.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is