Sigurður Einarsson: Skuldar VÍS 200 milljóna króna lán gegn veði í hálfbyggðu sveitasetri
Morgunblaðið segir frá því í dag að Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, skuldi Vátryggingafélagi Íslands 200 milljónir króna gegn veði í hálfbyggðu sveitasetri sínu við Veiðilæk í Borgarfirði.
Tryggingarbréfið, þar sem sveitasetrið er sett að veði fyrir skuldinni, var gefið út fyrir þremur mánuðum, eða 29. desember árið 2008.
Samkvæmt ársreikningi Veiðilæks ehf., sem er félag í eigu Sigurðar, stofnað um byggingu setursins, lánaði Sigurður sjálfur 218 milljónir til byggingar hússins í lok árs 2007.
Exista er eigandi VÍS, en Exista var stærsti eigandi Kaupþings fyrir bankahrunið í október.
Morgunblaðið sendi Sigurði spurningar um veðsetninguna í tölvupósti í gær.
Hann var spurður hvort skuld hans við VÍS væri vegna eigin lánveitinga og hvort hann hefði endurgreitt sér upphæðina sem hann lánaði Veiðilæk ehf. vegna sveitasetursins.
Sigurður svaraði ekki spurningum Morgunblaðsins öðruvísi en þannig að hann liti á sínar persónulegu fjárreiður sem einkamál og sæi ekki ástæðu til að fjalla um þær opinberlega.
Það var árið 2004 sem Sigurður Einarsson keypti jörðina Veiðilæk. Á sama tíma lánaði SPRON félagi í eigu Sigurðar 76 milljónir japanskra jena með veði í jörðinni.
Byggingin er um það bil 840 fermetrar og gert var ráð fyrir fimm baðherbergjum, stórri borðstofu, 50 fermetra vínkjallara, tvöföldum bílskúr og tveimur gufuböðum sem skyldu byggð inn í bergið undir setrinu.
Byggingu setursins hefur verið hætt, að minnsta kosti tímabundið. Það telst í dag fokhelt, en framkvæmdir hófust árið 2007.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is