Föstudagur 03.04.2009 - 12:10 - Ummæli ()

Fjármálaeftirlitið og fjölmiðlarnir: Ráðherra boðar breytingar á lagaákvæðum um þagnarskyldu

gylfi1.jpgGylfi Magnússon viðskiptaráðherra, yfirmaður Fjármálaeftirlitsins, segir nauðsynlegt að breyta ákvæðum laga um þagnarskyldu ef sú túlkun eftirlitsins sé rétt að fjórir blaðamenn hafa brotið lög með birtingu gagna um ýmislegt sem gerðist í gömlu bönkunum fyrir bankahrunið.

Þetta kom fram í hádegisfréttum Bylgjunnar.

Eins og Eyjan hefur greint frá hefur Fjármálaeftirlitið sent fjórum blaðamönnum, Agnesi Bragadóttur og Þorbirni Þórðarsyni á Morgunblaðinu, Kristni Hrafnssyni fyrrverandi fréttamanni á Stöð 2 og Guðmundi Magnússyni ritstjóra Eyjunnar bréf og lýst þeirri skoðun að þau hafi gerst sek um brot á ákvæðum um þagnarskyldu í lögum um fjármálafyrirtæki með birtingu efnis upp úr trúnaðarskjölum bankanna.

Gylfi segir að fjölmiðlar gegni mikilvægu hlutverki í þjóðfélaginu og tryggja verði stöðu þeirra. Þegar sé hafin endurskoðun á lagaákvæðum um þagnarskyldu í málum af þessu tagi.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is