Föstudagur 03.04.2009 - 11:27 - Ummæli ()

Gunnar Þ. Andersen ráðinn forstjóri Fjármálaeftirlitsins

fme1.jpgGunnar Þ. Andersen, framkvæmdastjóri hefur verið ráðinn forstjóri Fjármálaeftirlitsins.

Gunnar hefur starfað hjá Tryggingastofnun ríkisins frá 2006, fyrst sem forstöðumaður eftirlits en nú síðast sem framkvæmdastjóri Þróunar- og greiningarsviðs og staðgengill forstjóra.

Gunnar starfaði hjá Landsbanka Íslands frá 1991 til 2003, síðast sem framkvæmdastjóri alþjóða- og fjármálasviðs. Á undan því gunnar-andersen2.jpgvann hann meðal annars sem stjórnandi hjá Helly-Hansen a/s í Noregi og Pepsi-Cola Company í Bandaríkjunum og sem fjárfestingarfulltrúi í fjárreiðudeild Sameinuðu þjóðanna í New York þar sem hann hafði umsjón með fjárfestingum lífeyrissjóðs Sameinuðu þjóðanna.

Gunnar er með MBA gráðu frá University of Minnesota og viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands.

Frá þessu er greint á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins.

Þess má geta að  Gunnar var kjörinn forstjóri og varaforseti evrópskra samtaka gegn misferli og spillingu á heilbrigðissviði á ársfundi samtakanna árið 2007.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is