Össur: Gagnrýni Björns Bjarna á mig í raun gagnrýni á Árna M. og nýjan formann sjálfstæðismanna
Á bloggi sínu á eyjunni í dag segir Össur Skaprhéðinsson að Björn Bjarnason kvarti undan því að hann hafi átt kurteisisspjall við Gordon Brown á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins – í stað þess að skamma hann fyrir nýútkomna skýrslu sem staðfesti flest þau viðhorf sem hann (Össur) hafi áður tjáð vegna hryðjuverkalaganna.
Össur segist ekki hafa verið í neinu sambandi við Brown á leiðtogafundinum, hann hafi meira að segja neitað að vera á mynd með Brown, en telur rétt að rifja upp fádæma linku sjálfstæðismanna sjálfra gagnvart Bretum þegar Icesave-deilan stóð sem hæst.
Formaður Sjálfstæðisflokksins hafi ekki reynt að ná til Brown á sínum tíma til að segja honum til syndanna.
„Ég hefði kannski átt að gera það,“ sagði formaðurinn með döpur augu í frægum breskum sjónvarpsþætti, þegar spyrill hváði, og spurði hvort væri virkilega rétt, að hann hefði ekki reynt að ná sambandi við kollega sinn. Svona var kjarkur sjálfstæðismanna þegar deilan stóð hæst,“ segir Össur á blogginu.
Linka Sjálfstæðisflokksins gagnvart Bretum hafi verið ótrúleg og þáverandi ríkisstjórn til skammar.
Þegar Björn Bjarnason segi á heimasíðu sinni að illa sé haldið á málunum gagnvart Icesave sé hann líklega að skamma Árna M. Mathiesen. Um leið sé hann að senda sneið á frænda sinn, nýkjörinn formann Sjálfstæðisflokksins, sem vildi samninga, og taldi utanríkisráðuneytið hafa haldið vel á málinu.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is